28.02.2007 15:28:57 / robbi

Ný síða

Sælir veiðibræður og aðrir góðir gestir.

 

Nú hafa Sal Bass menn ákveðið að yfirgefa blogcentral.is vegna þess hve ömurlegt það er.

 

Ný síða hefur verið opnuð á salbass.com og hvet ég alla eindregið til að líta þar við enda mun betri síða.

 

Nú er einungis mánuður og 1 dagur í það að inntökuprófin hefjist og það fer hver að vera síðastur til að senda beiðni á stjórnina.

 

Veiðibjórinn 2007 verður svo tilkynntur 10. mars við hátíðlega athöfn.

 

kveðjur frá stjórninni,

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 20:54:31 / robbi

Jólin nálgast

Sælir Veiðibræður og aðrir vinir,

Ég ætla að biðjast afsökunar á bloggleysinu enda ávallt nóg að gera já Sal Bass mönnum. Þeir sem hafa hug á því að þreyta Sal Bass inntökuprófið þann 1. apríl eru hér með látnir vita að hvíla sig vel um jólin enda prófið í erfiðari kantinum og sniðugt að byrja að læra sem allra fyrst.

með veiðikveðju,
Stjórnin

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 12:31:20 / petur

Nóg að gera

Já það er búið að vera nóg að gera hjá Sal Bass mönnum þessa síðustu daga veiðisumarsins. Við gerðum góðan- og vægast sagt viðburðaríkan túr í Gufuá en þar þurfti hjálp bónda til að komast aftur að bílnum með aflann og búnaðinn. En með í för var hin fallega Loop Blue line tvíhenda sem að Róbert annar starfandi stjórnarformaður Sal Bass festi kaup á nú síðla sumars í Útivist og veiði, og er óhætt að segja að hún hafi vakið mikla lukku.

 

Viku síðar lá leiðin með alla meðlimi Sal Bass á Þingvelli en þar lentum við heldur betur í mokveiði. Tókum upp 43 bleikjur og 1 urriða á 5 klukkustundum og ber þar hæst að nefna 8 punda bleikju sem að ég sjálfur landaði eftir um 25 mín. baráttu og 16 punda urriðann sem að tvíhendan hans Róberts togaði á land á rétt um 20 mín.

 

Því miður var myndavélin ekki með í þessum túrum en þó tókum við eina mynd á símann hans Jóhanns í Þingvallatúrnum sem sýnir aflann eftir fyrsta klukkutímann.

 

 

 

Það er annars nóg framundan þrátt fyrir að veturkonungur sé farinn að láta fyrir sér finna en sjóbleikju veiði er plönuð í Grenilæknum um næstu helgi og líklega einn stór túr til viðbótar en það skírist á næstu dögum.

 

En núna verður þetta ekki lengra. Minni fólk bara á að fara aldrei á Hereford steikhús á Íslandi en þar fást bara illa eldaðar kúkasteikur.

 

 

Pétur Örn

Stjórnarformaður Sal Bass Iceland 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 23:38:07 / robbi

Sigurganga Sal Bass heldur áfram

Nú er kominn ágúst og veiðitímabilið er komið á seinni hlutann. Sal Bass menn hafa verið latir við að blogga á síðustu vikum en margt annað hefur borið á góma. Helst ber að nefna að Jóhann formaður Golfdeildar Sal Bass sigraði í BMW mótinu í golfi og vann sér inn þáttökurétt í BMW world final golf cup international mótinu sem mun fara fram í Suður Afríku þann 4 - 9. desember nk.

Hægt er að lesa meira um þetta á http://www.bl.is.

Á veiðilegri nótunum ber að nefna að nokkrir góðir túrar eru planaðir hjá Sal Bass mönnum á næstu vikum og munu myndir birtast um leið og þær koma.


Mynd af Jóa á góðri stund í Varmánni


Og hér er mynd af BMWinum sem hann hlaut í verðlaun.

Sal Bass menn vilja óska Jóhanni til hamingju með sigurinn.

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 14:59:25 / robbi

Ferð í Haukadalinn

Sal Bass menn eru nýkomnir úr Haukadalsá efri. Þeir sem skelltu sér voru Ég, Steinar og Pétur og vorum við frá 22-24 Júlí. Ljóst var þegar komið var á staðinn að aðstæður yrðu erfiðar. Enginn fiskur hafði veiðst um sumarið og ekkert var farið að bóla á bleikjunni. Veðrið var ekki það sem kalla mætti veiðiveður enda var heiðskírt, sól og hiti yfir 20 gráðum en það viðraði þó vel til söturs.

Ekkert veiddist á laugardeginum en menn létu það ekki á sig fá og elduðu lamba ribeye með meðlæti, reyktu vindla og smökkuðu á rauðvíni. Á sunnudeginum fór þó aðeins að lifna við og menn fóru að sjá laxa í efri hluta num af ánni. Einn af þessum löxum var dreginn á land (5 pund) og var það Steinar sem náði honum á bleika og bláa. Meira veiddist ekki á laugardeginum þó mikið hafði verið reynt. Á sunnudeginum fór að sjást í bleikjur og náðum við að landa einni á mann. Allar voru þó smáar, rétt rúmlega tvö pund en brögðuðust með eindæmum vel.

Í heild var ferðin skemmtilegt þrátt fyrir að fiskurinn væri tæplega kominn í ánna. Myndir eru væntanlegar og þær ættu að vera ágætar enda Haukadalurinn gullfallegur.

ps. Myndir frá Næturferð á Þingvelli eru komnar inn.



» 5 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 13:46:13 / robbi

Fjarfest i nyjum humidor

Saelir veidibraedur. Formadurinn skrifar her beint fra København. I dag var kikt i Jacobsens Humidors & Co. Eins og allir medlimir aettu ad vita tha er Jacobsen og synir fraegir fyrir al bestu vindlakassa veraldar. Eg skellti mer til theirra og fjarfesti i nyjum vindlakassa fyrir felagid. Eins og menn hafa tekid eftir tha var sa gamli ordinn longu genginn ur ser og farinn ad halda ojofnu rakastigi. Bid spenntur eftir ad komast i haukadalinn um helgina og vigja gripinn. Bestu kvedjur,

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.06.2006 11:17:23 / petur

Mikið fjör

Sælir veiðimenn

Vil ég byrja á að biðjast afsökunar á því hve sjaldan hér er bloggað. Ástæðan er einföld, við erum alltaf að landa. En það er skemmst frá því að segja að Sal Bass menn skelltu sér í Vesturröst og þar var fjárfest í góðum græjum. Sjálfan langaði mig að prófa eitthvað nýtt í sumar og skellti ég mér því á Orvis Western 2 og er gripurinn sá besti og hentar einkar vel í vatnaveiði.

Gaman er líka frá því að segja að við Salbass menn voru að bæta við sig nokkrum skemmtilegum veiðileyfum og nú er það sko engin tilraunaveiði eins og þegar við gerðumst svo frægir að veiða í skólprennunni í Hveragerði. Meðal skemmtilegra staða áskotnaðist okkur helgi á besta tíma í Haukdalsá en öruggt má teljast að nokkrum vænum verði landað þar.

Þangað til næst

Pétur Örn Salbass Iceland


Þarna er kallinn með nýja Westerninn

Steinar skellti sér einnig á Orvis TLS fyrir línu 6. Hann ku vera hæstánægður.



» 3 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 19:41:19 / robbi

Fyrir ykkur sælkerana

Kæru veiðibræður,

Ég vil hvetja alla til að smella sér inn á Sælkerahorn Steinars hér vinstra megin á síðunni. Þar mun vera hægt að nálgast allt sem fagurkerinn þarf að eiga í veiðina. Fregnir herma einnig að Steinar sé búinn að fá sér nýja stöng og ætla Sal Bass menn að kanna gripinn um helgina.

Stjórnin skellti sér á Þingvelli í gær og prufukeyrði nýju Orvis Zero Gravity stöngina í öskrandi vindi. Gripurinn stóð sig með prýði og hlaut einróma lof stjórnarinnar. Ég og Pétur fengum samtals 9 stykki en þeir voru í minni kantinum 3 - 4 pund.

Góðar fréttir af veiðibjórnum. Pilsner Urquell hefur skv. heimildum rokið upp í sölu eftir að Sal Bass menn útnefndu hann veiðibjórinn 2006.



» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 15:31:00 / petur

Varmá

Varmá - Þorleifslækur eða Þarmá - Kúkalækur eins og Sal Bass menn kalla hann varð fyrir valinu sem veiðistaður helgarinnar. Það er nú fátt gott að segja um þennan stað eða Árna Bald og félaga í agn.is ef að út í það er farið. Það var lítið vatn í ánni og svo gott sem enginn fiskur. Það stoppaði þó ekki Sal Bass menn í að landa 6 vænum. Voru þó aðrir "veiðimenn" á staðnum sammála um ef ekki hefðu verið svona leiknir og reyndir veiðimenn eins og forsprakkar Sal Bass Iceland hefði aflinn verið lítill sem enginn. Miklum vonbrigðum olli aðkoman en ekkert veiðihús var á staðnum og veiðistaðir illa merktir. Það var heldur engin gæsla á staðnum þannig að við tókum eftir að einhverjir vitleysingar á staðnum migu í stöðvarhyl og hentu kanilsnúðum og vindlum í ána.

Þessi veiðferð var vonbrigði mikil en hún var nú líka bara æfing fyrir komandi veiðitúra. Hún fær 1 lax af 5 í einkunn hjá Sal Bass.

Ps. Kíkið á myndirnar úr túrnum hérna vinstra megin. 


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 21:23:21 / robbi

Ný stöng !

Sal Bass menn eru sko ekki þekktir fyrir minna en það besta og því varð það vandaverk að finna nýja veiðistöng. Eftir að hafa tekið í nánast allir stangirnar á markaðnum og fá góðar ábendingar hjá Pétri Peacock þá varð Orvis Zero Gravity fyrir línu #6 fyrir valinu. Í dag var svo drifið sig til Jóa í Vesturröst og skellt sér á stöngina.

Fyrir áhugasama er hægt að lesa meira á www.orvis.com.

Nú er bara að drífa sig að landa löxum með gripnum.

Róbert að vonum ánægður með nýju stöngina.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 11:52:26 / joi

Veiðitúr í Vífilstaðarvatn

Sælir bræður og aðrir lesendur.
Ég ætla bara aðeins a tala um þennan stórmerkilega veiðitúr sem við fórum í á mánudaginn var..! þvílikur kvóti sem við drógum í land... greiniegt að nýju Punisherarnir (nýjar flugur sem við bræðurnir hönnuðum útfrá svarta Killernum) voru að virka feitt..!
það var bara svo leiðinlegt að allir veiðimennirnir sem voru í kringum okkur voru alltaf að spurja okkur um leynivopnið .. en þeir vita ekki að það er veiðimaðurinn sem veiðir en ekki flugan ! heehe what a suckers...

Jæja nú eru æfingarnar fyrir hina árlegu ferð í Varmánna búnar og það verða læti um næstu helgi! Mér er farið að hlakka alveg allsvaðalega til.

Þar til næst bless bless kornflex

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 22:37:09 / robbi

Sumarið hafið hjá Sal Bass

Sælir Veiðibræður,

Nú er sko aldeilis komið sumar og Sal Bass félagar búnir að bleyta græjurnar. Það fór ekki framhjá neinum að Sal Bass menn tóku helgina með trompi og voru á ferð og flugi. Helgin byrjaði með því að Sal Bass menn skönnuðu markaðinn og kíktu í flestar veiðibúðir í bænum. Undirritaður fjárfesti í þessu stórglæsilega Orvis Battenkill veiðihjóli hjá Jóhanni í Vesturröst og voru Sal Bass menn einróma sammála um að gripurinn væri hverrar krónu virði. Einnig kíktu ég og Pétur í Útivist og Veiði, þar sem við skelltum okkur á sitthvora Loop flotlínuna af 2006 árgerðinni. Við þurfum því ekki að hafa áhyggjur á að þær krullist fyrr en í fyrsta lagi 2010.

Þingvallavatn var tekið með stæl þessa helgina og létu veiðimeistararnir veðrið ekki á sig fá. Tveir vænir voru togaðir á land þann 1. Maí og voru það um 5 punda urriðar. Einum var sleppt enda viljum við geta veitt hann seinna í sumar. Hinum var ekki viðbjargandi enda flæktist sá illa í stórhnútaháfnum hans Péturs en ekki við því að kvarta því hann endaði á diskunum hjá stjórninni.

Búast má við að fleiri fiskar komi á land næstu helgi enda Sal Bass menn hættir að æfa köstin og byrjaðir að veiða.        

Ps: Endurtökuprófin verða haldin 17. Maí.

Pétur sáttur við nýju Loop línuna.

Kjarakaup !


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 15:32:51 / petur

Inntökupróf

Sælir veiðifélagar

Í dag komu endanlegar niðurstöður úr inntökuprófum Sal Bass Iceland. Það er vægast sagt hægt að segja að inntökuprófin hafi tekið á en um leið verið svaka skemmtileg. 21 mættu til að þreyta prófin en einum var meinað að þreyta prófið en það var hann Tóti nokkur "Tönn" en það er löngum ljóst að Sal Bass er félag sportveiðimanna en ekki kvótakalla þannig að hann hefði getið vitað að hann var ekki velkominn. Það voru því 20 sprenglærðir veiðimenn sem að þreyttu prófin en aðeins 3 stóðust og gerðu þeir það hinsvegar með miklum ágætum. Það voru þeir Steinar Ingi Farestveit veiðispegúlant með meiru, Ólafur Haukur Johnson fluguhnýtingameistari og hinn margslungni veiðimaður Jóhann Guðmundsson, eða Jói Frances eins og hann er betur þekktur. Einnig er gaman að geta þess að Ólafur mun sjá um útibú okkar Sal Bass manna í heimalandi stangveiðinnar Bretlandi.

 

Dagurinn var þó ekki gallalaus. En svindl sem kom upp varpaði eilitlum skugga á daginn. Það var hinn gamalkunni stangveiðimaður Skúli Arnfinnsson sem var gripinn með diktafón innanklæða að prófi loknu. Hann iðrast þessa gjörða sinni og verður með námskeið um prófkvíða og hvernig er hægt að taka á honum án þess að svindla á næsta miðvikudag í Hinu húsinu.

 

Niðurstaða dagsins er þó sú að það voru teknir inn góðir menn og Sal Bass eru sterkari samtök fyrir vikið.

 

Kv. Stjórnin

 

Ps. Endurtekningapróf verða haldin fyrir þá sem voru með hærra en 7,5 þann 7. maí næstkomandi þannig að það er aldrei að vita nema fleiri verði teknir inn þá. Menn sem fengu arfaslakar einkunnir eiga ekki sjéns á að taka inntökupróf en það voru Reynald Hinriksson með 2,3 og Steinar Birgisson með 1,9.

Prófin fóru fram í Stofu 15 í Flataskóla og þökkum við fyrir lánið á stofunni.


Hér sjást þreyttir Kandídatar. Enda prófin krefjandi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 01:42:07 / robbi

Fréttir frá stjórninni

Sælir kæru veiðibræður, Það fer ekki framhjá neinum að nú er kominn mars og það styttist óðfluga í veiðisumarið 2006. Pétur skipulagsstjóri er búinn að taka frá Þorleifslækinn fyrir Sal Bass, tvo daga í maí og eru fleiri ferðir í undirbúningi fyrir vorið og sumarið. Eins og glöggir Sal Bass meðlimir hafa tekið eftir þá er veiðiteljarinn kominn upp og silungarnir 6 sem fengust í janúar dorginu komnir á blað.

Það er venja hjá Sal Bass að taka inn nýliða í félagið á vorin og er árið í ár engin undantekning. Inntökuprófið verður haldið 1. apríl og þeir veiðimenn sem hafa áhuga á að reyna eru hvattir til að hafa samband við mig sjálfan eða Pippa Johns. Staðsetning inntökuprófana verður tilkynnt síðar.

Veiðibræður eru beðnir um að skoða einkaskilaboð á svæði meðlima þar sem árshátíðarnefnd gefur upplýsingar um árshátíðina sem haldin verður 29. apríl. Einnig eru veiðibræður beðnir um að borga árgjaldið ef þeir vilja fá afsláttarkortið 2006 sent til sín sem gefur afslátt í hinum ýmsu veiðiverslunum.

kv, Stjórnin


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 11:29:21 / petur

Nýtt merki Sal Bass

Jæja kæru veiðibræður.

Í dag hefur hið nýja logo Sal Bass verið afhjúpað. Það er algerlega ný hönnun og ekki á nokkurn hátt lýkt gamla loginu frá 1873 enda var það bara orðið barn sýns tíma. Logo-ið hannaði Steinar og stöndum við Sal Bass menn í mikilli þökk við hann. 

Veiðikveðja til veiðimanna frá stjórninni


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2